Skip to product information
1 of 2

Raspberry Rush (20stk)

Raspberry Rush (20stk)

Verð 2.290 ISK
Verð Útsöluverð 2.290 ISK
Útsala Uppselt
Með VSK

20 STIKUR
Drykkurinn er hannaður til að stuðla að rèttu vökva- og orkujafnvægi líkamans. Með náttúrulegum steinefnum og vítamínum – þar á meðal C-vítamíni, natríumklóríði, sinki, kalki og magnesíum – hjálpar hann þér að endurheimta vökva hratt, styrkir ónæmiskerfið og veitir stöðugri orku. Þetta er grunnurinn sem heldur þér á toppnum allan daginn.


Notkun Helltu innihaldi pakkans í um 500-600 ml af vatni

Hægt er að nota drykkinn 1-2 á dag til að viðhalda stöðugri vökvun og orku.


Innihaldsefni og kostir

C-vítamín: Styrkir ónæmiskerfið. Dregur úr þreytu. Eykur upptöku járns, stuðlar að myndun kollagens sem er mikilvægt fyrir heilbrigða húð, tennur, bein og brjósk. 
Kalk: Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfsemi taugakerfisins, samdráttarhæfni vöðva og
eðlilegan blóðþrýsting. Líkaminn þarf kalk til að byggja upp og viðhalda sterkum beinum. Hjartað, vöðvarnir og taugarnar þurfa einnig kalk til að starfa eðlilega. 
Fosfór: Nauðsynlegt fyrir sterk bein, heilbrigð taugaboð. Spilar lykilhlutverk í orkuframleiðslu og efnaskiptum fruma.
Magnesíum: Styður við vöðva- og taugastarfsemi. Bætir endurheimt eftir áreynslu, ásamt því að stuðla að slökun vöðva - getur minnkað streitu. Hjálpar til að framleiða orku og viðhalda blóðsykurjafnvægi.
Skortur á magnesíum hefur áhrif á taugaboð og vöðvasamdrátt. Það er hvati til myndunar ýmissa ensíma í líkamanum, sérstaklega þeirra sem stjórna
orkumyndun.
Sink: Styður ónæmiskerfið og hjálpar til að berjast gegn sýkingingum. Nauðsynlegt fyrir vöxt og viðgerð frumna, auk prótínmyndunar. 

Heildarkostir: Þessi blanda sameinar mikilvæga rafvaka og næringarefni til að styðja við daglega líkamsstarfsemi, vökvakafnvægi, og almenna vellíðan. Dregur úr þreytu og heldur þér alltaf á toppnum. 

 

 

View full details