Terms of service
Þessi vefsíða er í eigu og rekin af Skýjavötnum ehf, kt 630522-0210, VSK nr:145823
Persónuvernd:
Við notkun á þessari vefsíðu verða til upplýsingar um heimsóknina. Hydrateme notar
þessar upplýsingar til að betrumbæta vefsíðu okkar og upplifun notenda hennar. Við
leggjum áherslu á varðveislu þessara gagna og afhendum þau ekki þriðja aðila nema
um lagalega skyldu sé að ræða. Vafrakökum er safnað í þeim tilgangi að telja
heimsóknir sem og greina notendaferðalag (e. Users journey) um vefsíðuna. Þessar
upplýsingar eru nýttar með því markmiði að bæta upplifun notenda á vefsíðunni og
auðvelda aðgengi notenda að upplýsingum. HydrateMe notar Google analytics og
Facebook Pixel til að safna gögnum, þar koma fram upplýsingar um hverja heimsókn,
hversu lengi hún varði, hvert notandi fór innan vefsíðunnar og hvar hann fór af léninu.
Greiðslur:
Hægt er að greiða fyrir vörur með kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu
Saltpay. Hydrateme fær aldrei kortaupplýsingar viðskiptavina.
Vöruskil:
Uppfylli seld vara ekki væntingar viðskiptavina er þeim velkomið að hafa samband við
Hydrateme á hydrateme@hydrateme.is. Við bjóðum upp á endurgreiðslu eða vöruskipti
með því tilskildu að varan hafi ekki verið opnuð og umbúðir enn þá í upprunalegu
ásigkomulagi. Skilafrestur er 14 dagar frá kaupum og þarf að sýna fram á kvittun við
vöruskil.
Sendingarmátar:
Allar pantanir eru sendar með Dropp innan tveggja virkra daga frá greiðslu. Þegar
pöntun hefur farið frá Hydrateme má gera ráð fyrir að Dropp taki sér 1-3 virka daga til að bera pöntunina til viðskiptavina. Sé greitt fyrir heimsendingu er pakkinn keyrður upp að dyrum af Dropp. Einnig er hægt að velja næsta afhendingarstað viðtakanda.
Skýjavötn ehf. tekur ekki ábyrgð á að viðskiptavinir séu með rétt merkta póstkassa eða
póstlúgur, í þeim tilfellum þar sem merkinga er ábótavant munDropp senda pöntuna til
baka og lendir tilfallandi kostnaður á viðskiptavini. Einnig eru viðskiptavinir hvattir til að
hafa nöfn og heimilisföng eins ítarleg og kostur er á þegar pantað er. Hafi pöntun þín
ekki borist innan viku frá greiðslu er bent á að hafa samband við Hydrateme á netfangið
hydrateme@hydrateme.is eða síma 6802525.
Hydrateme er bæði netverslun og heildsala
Hafa samband:
hydrateme@hydrateme.is eða sími 680-2525